Dags. | 27. nóv '24 - 16. des '24 |
Dagar | mán, mið, lau |
Tími | 17:30-21:00 (lau 09:00-16:00) |
Lengd | 40 std. - 8 skipti |
Verð | 499.000 kr. |
Configuring Windows Server Hybrid Advanced series (AZ-801) er námskeið, tileinkað þeim sérfræðingum sem vilja ná tökum á þróuðum Windows netþjóna þjónustum með notkun staðbundinnar-, blandaðri- eða skýjatækni. Sérfræðingar læra að nýta sér blandaða tækni Azure ásamt því að flytja verkefni frá sýndarþjónum og netþjónum í sýndarvélar í Azure á Windows þjónum, á tryggan og öruggan hátt. Kenndar eru leiðir til að hámarka aðgengi og uppitíma ásamt bilanagreiningu og endurheimtun umhverfis/gagna vegna áfalla. Farið verður í helstu tól og tæki eins og Windows Admin Center, Powershell, Azure Arc, Azure Automation Update Management, Microsoft Defender for Identity, Azure Security Center, Azure Migrate, and Azure Monitor.
Um er að ræða mjög gagnlegt og áhugavert námskeið sem gerir talsverðar kröfur til nemenda. Þetta nám hentar þeim sem hafa áhuga á frama á upplýsingatæknisviði með tæknistjórnun sem aðalgrein. Námskeiðið er einnig hluti af Framabraut - Tæknistjórnun. Mælt er með að taka eigin tölvu með í námskeiðið.
Allir kennarar Promennt á Framabraut-Tæknistjórnun eiga það sameiginlegt að búa yfir gríðarlega mikilli reynslu í upplýsingatækni og hafa þar að auki Microsoft Certified Trainer gráðu frá Microsoft. Enn frekar erum við stolt af því að hafa í kennaraliðinu þá tvo einu Íslendinga sem bera meistaragráðu frá Microsoft (Microsoft Certified Master) í Active Directory og Messaging.
Eina Microsoft og Amazon (AWS) vottaða fræðslufyrirtækið á Íslandi
Við viljum vekja athygli á því að Promennt er eina fræðslufyrirtækið á Íslandi sem er með sérstaka vottun fræðsluaðila frá Microsoft og Amazon Web Services, en til þess að öðlast slíka viðurkenningu þarf að uppfylla mjög ströng gæðaskilyrði bæði Microsoft og Amazon. Þar má t.d. nefna sérstaklega öflugan vélbúnað, sérsniðið vottað námsefni, úrvals aðstöðu og kennara með svokallaðar MCT gráður (Microsoft Certified Trainer).
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga kl. 9-16.
Ýmsar leiðir eru í boði til fjármögnunar á námsbrautinni og má þar nefna m.a. raðgreiðslur, styrkir frá stéttarfélögum, styrkir fyrir atvinnuleitendur svo eitthvað sé nefnt.
Við vekjum athygli á að Promennt er eina fræðslufyrirtækið á Íslandi sem er með sérstaka vottun fræðsluaðila frá Microsoft og Amazon Web Services, en til þess að öðlast slíka viðurkenningu þarf að uppfylla mjög ströng gæðaskilyrði bæði Microsoft og Amazon. Þar má t.d. nefna sérstaklega öflugan vélbúnað, sérsniðið og vottað námsefni, úrvals aðstöðu og kennara með MCT gráður (Microsoft Certified Trainer).
Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu, hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni ►
Nemendur fá upptökur af öllum kennslustundum inn á teymið sitt í Microsoft Teams. Þetta veitir frábæran stuðning við námið sem mun gagnast nemendum sérlega vel hvort sem námið er stundað í Fjarkennslu í beinni eða í staðnámi.
►Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir: Vinnumálastofnun/stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Flokkur | Dags. | Dagar | Tími | Verð | |
---|---|---|---|---|---|
Staðarnám / Onsite |
27.11. 2024 -
16.12. 2024
|
mán, mið, lau | 17:30-21:00 (lau 09:00-16:00) | 499.000 kr. | Skráning / Registration |
Fjarkennsla í beinni / Remote |
27.11. 2024 -
16.12. 2024
|
mán, mið, lau | 17:30-21:00 (lau 09:00-16:00) | 499.000 kr. | Skráning / Registration |
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar