Collaboration Communications Systems Engineer (MS-721) er námskeið sem er hannað til að veita þátttakendum þekkingu og færni til að verða samskiptatæknistjórar. Þátttakendur ættu að skilja grundvallaratriði netkerfis, fjarskipta, hljóð-/mynd- og fundarherbergjatækni, auðkennis- og aðgangsstjórnun og Microsoft Teams.
Nemendur fá einnig verklega reynslu í að stilla og dreifa Microsoft Teams Phone, fundum og vottuðum tækjum eins og Microsoft Teams Rooms og Surface Hub. Einnig læra nemendur hvernig á að nýta stjórnendamiðstöð Microsoft Teams til þess að stýra umhverfi; svo sem stjórna leyfum, aðgangi og notendum og stjórna stillingum fyrir fundi og öryggis- og samræmisstillingum.
Samskiptatæknistjórar sjá um að skipuleggja, dreifa, stilla, viðhalda og stýra bilanaleit á Microsoft Teams Phone kerfinu, fundum, persónulegum tækjum og tækjum sem er deilt milli fólks t.d. á vinnustað - þar á meðal Microsoft Teams Rooms og Surface Hub. Samskiptatæknistjórar vinna með Teams stjórnendum, Microsoft Identity, Access stjórnendum og Microsoft 365 stjórnendum. Einnig geta samskiptatæknistjórar unnið með stjórnendum annarra sviða eins og aðstöðustjórum, sviðsstjórum, öryggis- og netstjórnendum, tækjaframleiðendum, símafyrirtækjum og Microsoft vottuðum dreifiaðilum.
Um er að ræða mjög gagnlegt og áhugavert námskeið sem gerir talsverðar kröfur til nemenda. Þetta nám hentar þeim sem hafa áhuga á frama á upplýsingatæknisviði með tæknistjórnun sem aðalgrein. Námskeiðið er einnig hluti af Framabraut - Tæknistjórnun.
Allir kennarar Promennt á Framabraut-Tæknistjórnun eiga það sameiginlegt að búa yfir gríðarlega mikilli reynslu í upplýsingatækni og hafa þar að auki Microsoft Certified Trainer gráðu frá Microsoft. Enn frekar erum við stolt af því að hafa í kennaraliðinu þá tvo einu Íslendinga sem bera meistaragráðu frá Microsoft (Microsoft Certified Master) í Active Directory og Messaging.
Eina Microsoft og Amazon (AWS) vottaða fræðslufyrirtækið á Íslandi
Við viljum vekja athygli á því að Promennt er eina fræðslufyrirtækið á Íslandi sem er með sérstaka vottun fræðsluaðila frá Microsoft og Amazon Web Services, en til þess að öðlast slíka viðurkenningu þarf að uppfylla mjög ströng gæðaskilyrði bæði Microsoft og Amazon. Þar má t.d. nefna sérstaklega öflugan vélbúnað, sérsniðið vottað námsefni, úrvals aðstöðu og kennara með svokallaðar MCT gráður (Microsoft Certified Trainer).
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga kl. 9-16.
Ýmsar leiðir eru í boði til fjármögnunar á námsbrautinni og má þar nefna m.a. raðgreiðslur, styrkir frá stéttarfélögum, styrkir fyrir atvinnuleitendur svo eitthvað sé nefnt.
Við vekjum athygli á að Promennt er eina fræðslufyrirtækið á Íslandi sem er með sérstaka vottun fræðsluaðila frá Microsoft og Amazon Web Services, en til þess að öðlast slíka viðurkenningu þarf að uppfylla mjög ströng gæðaskilyrði bæði Microsoft og Amazon. Þar má t.d. nefna sérstaklega öflugan vélbúnað, sérsniðið og vottað námsefni, úrvals aðstöðu og kennara með MCT gráður (Microsoft Certified Trainer).
Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu, hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni ►
Nemendur fá upptökur af öllum kennslustundum inn á teymið sitt í Microsoft Teams. Þetta veitir frábæran stuðning við námið sem mun gagnast nemendum sérlega vel hvort sem námið er stundað í Fjarkennslu í beinni eða í staðnámi.
►Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir: Vinnumálastofnun/stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar