Í þessu námskeiði er farið er yfir hvað er verkefnastjórnun, skipulag og utanumhald verkefna með hugbúnaðurinn MindManager.
Markmið námskeiðsins er að þátttakandi skilji hugtakið verkefnastjónun og með notkun á hugbúnaðinum MindManager við skipulag verkefna og áætlanagerð.
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á verkefnastjórnun. Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna tölvukunnáttu.
Á námskeiðinu er farið yfir:
MindManager er frír í 30 daga á vef Verkefnalausna en hægt er að kaupa MindManager hugbúnaðinn á vef Verkefnalausna.
Ekki eru lögð fyrir formleg lokapróf.
Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni ►
► Greiðslur: Hægt er að greiða í gegnum Netgíró (staðgreiðsla og dreifing) og bjóðum við einnig upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
► Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
► Námskeiðið er haldið í samvinnu við Verkefnalausnir ehf.
► Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar