Skrifstofuskólinn er námsbraut sem kennd er í samstarfi við Framvegis-miðstöð símenntunar. Tilgangur námsins er að efla þekkingu og auka hæfni þeirra sem sinna eða hafa hug á að sinna almennum skrifstofustörfum. Markmið námsbrautarinnar er að nemendur öðlist þá hæfni sem þarf til að geta unnið alhliða skrifstofustörf með hjálp algengasta hugbúnaðs og skýjalausna sem notuð eru á vinnumarkaðnum. Að auki munu nemendur öðlast góða þekkingu og læra að færa bókhald. Námið er líka frábær undirbúningur undir áframhaldandi nám.
Skrifstofuskólinn er fyrir fólk sem hefur stutta formlega skólagöngu að baki og er mögulegt að fá námið metið til 18 eininga á framhaldsskólastigi. Kennt er eftir viðurkenndri námskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Mælt er með að taka eigin tölvu með í námskeiðið.
Skrifstofuskólinn er frábær undirbúningur fyrir námskeiðið Bókhald fyrir lengra komna sem er á námsbrautinni Framabraut-Viðurkenndur bókari. Þeir nemendur sem ljúka Skrifstofuskólanum geta fengið nám sitt metið til styttingar á námi við námsbrautina Framabraut - viðurkenndur bókari.
Námsbrautin er styrkt af Fræðslusjóði og er hægt að bjóða þessa öflugu námsbraut á aðeins 69.000 kr. (heildarvirði er 299.000 kr.).
Um er að ræða mjög gagnlega og áhugaverða námsbraut sem gerir kröfur til nemenda. Þetta nám hentar þeim sem vilja auka færni sína í almennum skrifstofustörfum og hyggja á starfsframa á því sviði, styrkja kunnáttu sína eða nota sem grunn fyrir frekara nám. ATH að Skrifstofuskóli Promennt og Framvegis er ætlaður fólki sem er 18 ára eða eldra og hefur ekki lokið framhaldsskóla.
Markmiðið með Skristofuskólanum er að nemendur öðlist þá hæfni sem þarf til að geta unnið alhliða skrifstofustörf með hjálp algengasta hugbúnaðs og skýjalausna sem notuð eru á vinnumarkaðnum. Að auki munu nemendur öðlast góða þekkingu og læra að færa bókhald. Námið er líka frábær undirbúningur undir áframhaldandi nám.
Í lok námsins hefur þátttakandi:
Hægt er að stunda nám í Skrifstofuskólanum með því að mæta í kennslustofu eða í fjarnámi.
Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins þar sem námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem auðvelt er að yfirfæra á almenn skrifstofustörf. Þannig byggir kennslan bæði á fyrirlestrum og verklegum æfingum og fá þátttakendur hagnýt verkefni í tengslum við innihald náms, en sérstök áhersla er lögð á sjálfstæða vinnu þátttakenda undir stjórn kennara.
Í tölvubókhaldinu er notað námsefni með raunverulegum fylgiskjölum í bókhaldsmöppu og eru þau merkt og færð með tilheyrandi uppgjöri og útskriftum.
Kennari og nemandi fara reglulega yfir það sem hefur áunnist í náminu. Próf eru valkvæð en við mælum með að nemdendur taki próf ef þeir stefna á að halda áfram í frekar nám.
1. Tölvu- og upplýsingaleikni
Farið er í þær tölvugreinar sem nauðsynlegt er að kunna góð skil á við alhliða skrifstofustörf. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur læri að nota skýjalausnir eins og Office 365 við samvinnu og teymisvinnu.
2. Verslunarreikningur og bókhald
Þessi hluti Skrifstofuskólans er helgaður viðskiptagreinunum verslunarreikningi og bókhaldsgrunni. Í verslunarreikningi er rifjuð upp einföld talnameðferð s.s. almenn brot, tugabrot, jöfnur og hlutföll. Helstu vaxtaformúlur kynntar og æfingadæmi reiknuð, einnig eru helstu vaxtahugtök útskýrð með dæmum og æfingum. Vísitölur og verðtryggingar eru kynntar og meðferð þeirra útskýrð. Því næst verður farið yfir allar helstu reglur um vsk. Farið yfir hvað telst vsk.skyldur kostnaður og hvað ekki, helstu undanþágur ofl. Áður en farið er í tölvubókhaldið verður kennd undirstaða bókhalds þar sem helstu reikningar eru teknir fyrir og verkefni færð í dagbók. Afstemming með prófjöfnuði. Gerð einfalds rekstrar- og efnahagsreiknings. Lestur ársreikninga og lykiltölur.
3. Tölvubókhald
Þegar nemendur hafa öðlast þekkingu á grunnþáttum bókhalds verður kennd undirstaða í meðferð bókhaldsgagna í tölvu. Uppbygging bókhaldslykla í tölvu, hvernig færslur eru skráðar. Afstemmingar, meðal annars við bankayfirlit. Prentun reikningslykla, hreyfingalista, aðalbókar, efnahags og rekstrarreikninga.Jafnframt læra nemendur að nota viðskipa- og lánadrottna kerfin ásamt birgða-, innkaupa- og sölukerfi.
4. Tollskýrslugerð
Kynntar eru helstu reglur er varða inn- og útflutning; tollskýrslugerð, innflutningstakmarkanir og undanþágur. Farið er yfir fylgiskjöl með vörusendingum og hvaða tilgangi þau þjóna við innflutning og gerð tollskýrslna. Farið er m.a. yfir myndun tollverðs og útreikning aðflutningsgjalda. Kynntir eru fríverslunarsamningar og notkun tollskrárinnar.
5. Þjónusta, samskipti, ferilskrá, námstækni
Að auki verður fjallað er um þætti sem hafa áhrif á nám og kenndar eru aðferðir sem auðvelda nám. Nemendum eru kennd rétt vinnubrögð við gerð ferilskrár og færnimöppu. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir mikilvægum atriðum sem snúa að þjónustu við viðskiptavini og samskipti við vinnufélaga.
6. Lokaverkefni
Þegar komið er út á vinnumarkaðinn er mikilvægt að hafa hagnýta reynslu af viðfangsefninu. Í lok námsins vinna nemendur lokaverkefni í samráði við kennara.
Próf eru valkvæð en við mælum með að nemdendur taki próf ef þeir stefna á að halda áfram í frekar nám. Jafnframt gera nemendur lokaverkefni í samráði við kennara í lok námsins. Til að ljúka námi þarf mæting að vera lágmark 80% af heildarfjölda kennslustunda.
Staðarnámið er kennt hjá NTV í Hlíðasmára 9
Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni ►
►Mætingaskylda: 80% af heildarfjölda kennslustunda
►Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar