***SKRÁNINGARFRESTUR FYRIR ÞETTA PRÓF ER LIÐINN OG HEFUR VERIÐ LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR. ATH AÐ ENGAR UNDANTEKNINGAR ERU GERÐAR.***
Prófhluti II - Skattskil er hluti af þeim prófum sem haldin eru til viðurkenningar bókara 2019 með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald.
*Þó háð því að lágmarksfjöldi próftaka náist.
***SKRÁNINGARFRESTUR FYRIR ÞETTA PRÓF ER LIÐINN OG HEFUR VERIÐ LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR. ATH AÐ ENGAR UNDANTEKNINGAR ERU GERÐAR.***
Skráningarfrestur í prófhluta II rennur út mánudaginn 9. september kl. 23:59. ATH að enginn möguleiki er á að skrá sig eftir þann tíma og eru engar undantekningar gerðar þar á.
Staðsetningar í boði*: Reykjavík (í sal á Grand Hótel), Akureyri, Ísafjörður, Egilsstaðir, Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjar.
*Þó háð því að lágmarksfjöldi próftaka náist.
Próftökugjald fyrir þetta próf er 37.500 kr. Til þess að öðlast próftökurétt þarf að skrá sig hér á síðunni og greiða prófgjald fyrir þetta próf í síðasta lagi á eindaga; fimmtudaginn 7. nóvember kl. 23:59. Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka um leið og skráningarfrestur rennur út. ATH ekki er hægt að greiða greiðsluseðil eftir að eindaga lýkur.
Um efnissvið prófsins vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 686/2015 um próf til viðurkenningar bókara og til prófefnislýsingar sem birt er á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins www.anr.is.
Skattabæklingur fylgir prófinu (frá PWC Skattur 2019).
Próftaki ber einn ábyrgð á því að þau gögn sem tekin eru með á prófstað séu í samræmi við prófefnislýsingu og að gögnin séu uppfærð lagalega séð, þ.e. próftaki þarf að vita um og þekkja nýjustu breytingar á lögum og reglugerðum á hverjum tíma.
Miðað er við 1. september ár hvert þegar talað eru um „nýjustu breytingar á lögum og reglugerðum á hverjum tíma“
Umsóknum um lengri próftíma og/eða önnur sérúrræði skal skila inn með því að senda tölvupóst á vbprof@promennt.is í síðasta lagi 30. október.
Til að hægt sé að veita sértæk úrræði í prófinu þarft þú að verða þér út um gögn frá viðeigandi sérfræðingi, sem staðfestir þörf fyrir úrræði og koma í viðtal til náms- og starfsráðgjafa. Gengið verður frá sérstöku skriflegu samkomulagi um öll úrræði. Athugið að það getur tekið langan tíma að fá tíma hjá sérfræðingi svo að mælt er með að gerðar séu ráðstafanir strax.
Athugið að sum úrræði eru þess eðlis að þau krefjast sérstaks undirbúnings framkvæmdaraðila prófanna svo það er mikilvægt að sótt sé um sérúrræði með góðum fyrirvara (strax eftir skráningu í prófið).