Promennt og Framtíðin námslánasjóður hafa gert með sér sérstakt samkomulag um að nemendur Promennt sem eru að fara í eftirfarandi námsbrautir, geta sótt um námslán hjá sjóðnum:
Mögulegt er að sækja um lán til að standa undir námskeiðsgjaldi til Promennt.
Hvernig lán er þetta? - Lánakjörin
Námslán Framtíðarinnar eru jafngreiðslulán (annuitet) með 12 ára endurgreiðslutímabili. Endurgreiðslur hefjast 6 mánuðum eftir námslok. Boðið er upp á að taka verðtryggt eða óverðtryggt lán.
Kjör lána miðast við vaxtatöflu og gjaldskrá Framtíðarinnar á hverjum tíma, en nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Framtíðarinnar http://framtidin.is/namslan/ og á umsóknarvefnum https://umsokn.framtidin.is/, þar sem jafnframt er sótt um lánið. Reiknivél á umsóknarvef Framtíðarinnar reiknar út greiðslubyrði og endurgreiðsluáætlun lánsins.
Hvernig er hægt að sækja um?
Fyrst þarf að skrá sig í nám hjá Promennt á einni af námsbrautunum. Þá er hægt að sækja um lán hjá Framtíðinni á umsóknarvef þeirrahttps://umsokn.framtidin.is/. Framtíðin metur því næst hvort nemandi uppfylli lánaskilyrði lánasjóðsins.
Gera þarf ráð fyrir að umsóknarferlið taki allt að tveim vikum.
Allar nánari upplýsingar um náms- og framfærslulánin má sjá á heimasíðu Framtíðarinnar: http://framtidin.is/namslan/