Á þessu námskeiði verða tekin fyrir helstu atriði er varða skattskil einstaklinga með atvinnurekstur.
Námskeiðið hentar þeim sem hafa lokið við bókhaldsnámskeið eða hafa bókhaldsreynslu. Gert er ráð fyrir að nemendur geti sett upp ársreikninga og hafi haldgóða þekkingu á launaútreikningi. Þetta námskeið er einnig hugsað sem hluti af aðfararnámi fyrir þá sem stefna á Viðurkenningu bókara. Mælt er með að taka eigin tölvu með í námskeiðið.
Að auki verður fjallað um algengustu félagaformin (hlutafélög, einkahlutafélög, samlagsfélög og sameignarfélög) og mismunandi ábyrgðir hluthafa/eigenda. Einnig verða tekin fyrir lög um tekjuskatt, útfyllingu skattframtala einstaklinga og lögaðila, skattskyldar tekjur og tekjuskattstofn, helstu frádráttarliðir ásamt samskiptum við RSK. Verklegar æfingar í útfyllingu skattskýrslna fyrir einstaklinga með rekstur.
Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur öðlist góða þekkingu og færni í skattskilum miðuðum að einstaklingum í rekstri.
Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir.
Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni ►
►Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar